Facebook biðst afsökunar

Saksóknarar halda því fram að auglýsingaherferðin hafi jafnvel átt sinn …
Saksóknarar halda því fram að auglýsingaherferðin hafi jafnvel átt sinn þátt í árásinni á bænahús gyðinga í Pittsburgh í síðustu viku. AFP

Facebook hefur beðist afsökunar á að hafa samþykkt auglýsingaherferð sem beint var að notendum með áhuga á samsæriskenningu sem hvítir þjóðernissinnar gera gjarnan hátt undir höfði og snýst um að utanaðkomandi öfl séu að undirbúa þjóðarmorð á hvítu fólki.

BBC greinir frá því að Facebook-herferðin hafi náð til 168.000 notenda, en saksóknarar halda því fram að auglýsingaherferðin hafi jafnvel átt sinn þátt í því að veita manninum sem réðst inn í bænahús gyðinga í Pittsburgh í Bandaríkjunum í síðustu viku innblástur.

Facebook hefur verið harðlega gagnrýnt í gegn um tíðina fyrir lélegt eftirlit með notendum og auglýsendum á samfélagsmiðlinum.

Breski þingmaðurinn Damian Collins er meðal þeirra sem gangrýnir Facebook harðlega vegna málsins og í samtali við BBC segir hann eftirlit Facebook langt undir þeim kröfum sem ætti að gera til svo umfangsmikils fyrirtækis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert