Krefjast lausnargjalds frá 200 fyrirtækjum

Tölvuskjár sem sýnir tölvu þar sem krafist er lausnargjalds eftir …
Tölvuskjár sem sýnir tölvu þar sem krafist er lausnargjalds eftir netárás. AFP

Um það bil 200 bandarísk fyrirtæki hafa orðið fyrir barðinu á „gríðarstórri“ netárás, að sögn netöryggisfyrirtækisins Huntress Labs. Árásin beindist til að byrja með að hugbúnaðarfyrirtækinu Kaseya en dreifðist svo til fyrirtækja sem nota hugbúnað Kaseya.

BBC greinir frá.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að það sé nú að rannsaka „mögulega árás“.

Huntress Labs telur að REvil-gengið standi að árásinni en talið er að REvil starfi frá Rússlandi. 

Hóta að eyðileggja orðspor eða gögn

Netöryggis- og innviðastofnun Bandaríkjanna sagði í tilkynningu að hún væri að grípa til aðgerða til þess að bregðast við árásinni sem hófst síðdegis í gær, á sama tíma og fyrirtæki víða um Bandaríkin voru að loka sínum dyrum fyrir helgina. 

Um er að ræða lausnargjaldsárás (e. ransomware). Slíkar árásir eru framkvæmdar með því að koma tölvuvírusum fyrir í tölvum sem hóta því að eyðileggja gögn eða orðspor fólks nema viðkomandi greiði glæpamanninum lausnargjald. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert