Ný upplýsingahraðbraut á milli Íslands og Írlands

Sæstrengir sem tengja landið við umheiminn og samtenging fjarskiptastaða Mílu …
Sæstrengir sem tengja landið við umheiminn og samtenging fjarskiptastaða Mílu í Evrópu.

Nýr sæstrengur á milli Írlands og Íslands, IRIS, var tekin í notkun í fyrradag. Sæstrengurinn er á vegum Farice ehf. en fjarskiptafyrirtækið Míla sér um þjónustu yfir strenginn.

Sæstrengir eru einskonar upplýsingahraðbrautir, en svartími skýjaþjónustu af ýmsum toga, eins og Facebook, Twitter og Netflix, verður mun hraðvirkari með tilkomu IRIS.

Míla hefur samtengt alla fjarskiptastaði sína í Evrópu til að bæta öryggi útlandasambanda og hefur sett upp fjarskiptaaðstöðu í Dublin á Írlandi og mun því komast nær mikilvægum skýjaþjónustum hýstum á Írlandi eins og Amazon, Google og Microsoft. 

Með tilkomu nýs sæstrengs eru fjarskiptaleiðir landsins nú orðnar þrjár talsins, en fyrir eru sæstrengirnir FARICE, sem liggur til Bretlands, og DANICEsem liggur til Hollands.  

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert