Íslenskur vísindamaður hlýtur 218 milljóna styrk

Sjónaukinn sem verður notaður við rannsóknir Ásu.
Sjónaukinn sem verður notaður við rannsóknir Ásu. Samsett mynd

Íslenskur stjarneðlisfræðingur, Ása Skúladóttir, hefur hlotið virtan styrk frá Evrópska rannsóknaráðinu upp á 1,5 milljónir evra sem jafngildir rúmum 218 milljónum króna.

Styrkinn hlýtur Ása til að vinna að verkefni sínu „Treasures: Digging into dwarf galaxies“, sem mætti útleggjast sem „Fjársjóðsleit meðal dvergvetrarbrauta“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjarneðlisfræðingnum.

Svara grundvallarspurningum um Vetrarbrautina

Styrkinn hlýtur jafnan tiltölulega ungt og framúrskarandi vísindafólk, en Ása útskrifaðist með doktorsgráðu í stjarneðlisfræði frá háskólanum í Groningen í Hollandi árið 2016 og starfar sem vísindakona við háskólann í Flórens á Ítalíu.

Með verkefni sínu stefnir Ása á að nota ný gögn um nálægar dvergvetrarbrautir til að reyna að svara grundvallarspurningum um Vetrarbrautina okkar og hvernig frumefnin urðu til, að því er fram kemur í tilkynningunni.

„Eins og allar stærri vetrarbrautir, þá þróaðist og stækkaði Vetrarbrautin okkar í gegnum röð samruna við minni vetrarbrautir, þ.e. svokallaðar dvergvetrarbrautir. Í kringum Vetrarbrautina okkar eru núna þekktar yfir 50 dvergvetrarbrautir sem eru á braut um hana, svipað því og hvernig jörðin er á sporbraut um sólina.

Nýlega hafa einnig fundist fjöldamargir stjörnustraumar sem taldir eru vera leifar af gömlum dvergvetrarbrautum sem hafa verið slitnar í sundur af þyngdarafli Vetrarbrautarinnar. Þessar litlu dvergvetrarbrautir og stjörnustraumar þeirra eru fjársjóðskista sem geymir svör við mörgum af stóru spurningum stjarneðlisfræðinnar.

Vegna Gaia-geimsjónaukans, sem rannsakar meira en tvo milljarða stjarna í Vetrarbrautinni og nágrenni, hefur aldrei verið auðveldara að auðkenna þær stjörnur sem tilheyra þessum dvergvetrarbrautum og stjörnustraumum. Núna er verið að hanna nýjan litrófsmæli, 4MOST, sem getur tekið litróf af 2400 stjörnum í einu, og verður staðsettur á 4 metra VISTA sjónaukanum í Chile.

Með því að nýta sér þessar framfarir, þá hannaði Ása stærstu könnun af sínu tagi, 4DWARFS, sem var samþykkt árið 2021 eftir tveggja ára umsóknarferli. 4DWARFS mun nota 4MOST á árunum 2024-2029 mun taka litróf af um 130.000 stjörnum í dvergvetrarbrautum og stjörnustraumum sem að sjást frá suðurhveli jarðar. Þannig er hægt að mæla hraða stjarnanna, aldur þeirra og efnasamsetningu. Verðmæti þessara gagna sem hún hefur fengið samþykki fyrir er um 2-3 milljónir evra.“

Allar þekktu dvergvetrarbrautirnar á himinhvolfinu ásamt þekktum stjörnustraumum. Ein af …
Allar þekktu dvergvetrarbrautirnar á himinhvolfinu ásamt þekktum stjörnustraumum. Ein af stærstu dvergvetrarbrautunum, Bogamaðurinn, hefur slóð af stjörnum á eftir sér sem eru slitnar í burtu frá dvergvetrarbrautinni vegna þyngdarafls Vetrarbrautarinnar. Mynd/Aðsend

Einstakt tækifæri

Verkefnið mun reyna að svara grundvallarspurningum eins og: Hvernig voru fyrstu stjörnurnar í alheiminum? Hvernig urðu frumefni eins og kolefni, járn og gull til? Hvernig dreifðust frumefnin um heiminn?

Þessi gögn bjóða upp á einstakt tækifæri til að skoða eiginleika hulduefnis, og reyna að skilja hvernig Vetrarbrautin okkar varð til, hvernig hún þróaðist og stækkaði í gegnum aldirnar, alla leið frá fyrstu stjörnunum og fram til dagsins í dag, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert