Þessi kokteill er einn af mínum uppáhaldsdrykkjum en ég tríta mig reglulega á Balí með einum ísköldum Coconut-killer. Kokteillinn er upphaflega frá veitingahúsinu Casa Luna á Balí og það er hreinlega bannað að fara í gegnum listamannaþorpið Ubud án þess að borða þar.
Coconut-killer fyrir 1
1 skot Bacardi-romm
2 skot Malibu-kókoshneturomm eða eitt skot Malibu og eitt skot Midori-líkjör
2 ½ dl kókosís
1 ¼ dl kókosmjólk úr fernu eða hnetu
klaki
Setjið allt í blandara.