5 stórkostlegar fiskuppskriftir

Steinbítur í piparrjómasósu með vínberjum. Hann er gott að bera …
Steinbítur í piparrjómasósu með vínberjum. Hann er gott að bera fram í pönnu með fersku salati og smælki. mbl.is/Íris Ann

Hvernig væri að bjóða upp á eitthvað nýtt og hugsanlega eina stórfenglegustu máltíð lífs þíns í kvöld? Okei eða allavega vikunnar. Hér koma nokkrar af uppáhaldsuppskriftum mínum sem virkilega bæta og kæta!

Þorskur með pistasíusalsa
Þessi uppskrift tekur dálítinn tíma en er ALGJÖRLEGA þess virði. Um er að ræða stórkostlegan mat sem flestir geta ekki beðið eftir að elda aftur.

Þorskur með pistasíusalsa og guðdómlegri smjörsósu.
Þorskur með pistasíusalsa og guðdómlegri smjörsósu. Ljósmynd/Dröfn

Sturlaður steinbítur í piparsósu með vínberjum
Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þetta er einn vinsælasti rétturinn á fiskistaðnum Messanum og ég fæ bara ekki nóg af honum svo ég hnuplaði uppskriftinni.

Steinbítur í piparrjómasósu með vínberjum er unaðsleg fæða.
Steinbítur í piparrjómasósu með vínberjum er unaðsleg fæða. mbl.is/Messinn

Klassískur plokkfiskur 
Plokkfiskur er herramannsmatur með góðu rúgbrauði og salati eða léttsteiktu blómkáli. Plokkfisk ætti í raun að bjóða oftar upp á. Sem álegg á litla rúgbrauðsbita í veislum eða ofan á súrdeigspítsur. Jummí!

Þessi uppskrift er frá Oddi hjá Norðanfiski en hann hefur …
Þessi uppskrift er frá Oddi hjá Norðanfiski en hann hefur sýslað með fisk nánast allt sitt líf. mbl.is/fiskurimatinn.is

Miðjarðarhafsfiskur með fetaosti og eggaldin 
Einfaldur og stórgóður réttur sem klárast alltaf. Ekki er verra að bjóða upp á hrísgjón og ferskt salat með þessu gúmmelaði.

Djúsí fiskréttur í mexíkóskri ostasósu.

Djúsí fiskréttur með mexíkó-ostasósu.
Djúsí fiskréttur með mexíkó-ostasósu. mbl.is/fiskurimatinn.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert