Mexíkó kjúklingasúpa með tómötum

Þægilegt er að elda súpur í steypujárni.
Þægilegt er að elda súpur í steypujárni. mbl.is/Árni Þór Árnason

Mexíkó kjúklingasúpur eru í gríðarlegu uppáhaldi hjá landsmönnum ef marka má vinsældir þeirra hér á Matarvefunum. Við erum því alltaf til í nýjar útfærslur af þessum magnaða rétti sem er svo einfaldur en í senn svo flókinn - svona hvað varðar bragð.

Þessi uppskrift er eftir Árna Þór Árnason lítur vel út svo að ekki sé meira sagt. Til að toppa herlegheitin er uppskriftin jafnframt aðgengileg á myndbandi en það hjálpar alltaf til. Myndbandið er hægt að nálgast hér.

En súpan er skotheld enda erfitt að klúðra uppskrift sem inniheldur rjómaost!

Mexíkósk kjúklingasúpa

Þessi uppskrift dugar fyrir 4-5

  • 400 g kjúklingakjöt
  • 1 msk. olía
  • 1 stk. laukur
  • 6 stk. plómutómatar skornir í bita
  • 100 g blaðlaukur smátt saxaður
  • 1 stk. rauð paprika smátt söxuð
  • 1 stk. grænt chili fínt saxað
  • 2 tsk. paprikuduft
  • 3 msk. tómatpúrra
  • 1½ l kjúklingasoð (vatn og teningur)
  • 2 dl salsa sósa
  • 100 g rjómaostur

Meðlæti í súpuna

  • sýrður rjómi
  • nachos flögur
  • rifinn ostur
Aðferð:
  1. Steikið saman í olíu kjúklingakjötið, laukinn, blaðlaukinn, paprikuna, grænt chilli og plómutómatana.
  2. Bætið í paprikudufti og tómatpurré, blandið vel saman. Hellið saman við kjúklingasoðið og látið sjóða í 15-20 mí.n við vægan hita.
  3. Bætið salsasósu í súpuna ásamt klípum af rjómaostinum. Látið sjóða í 3-5 mín. við vægan hita. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, nachos-flögum og rifnum osti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert