Fiskisúpan sem slær alltaf í gegn

Ég átti smá spergilkál sem ég bætti við að þessu …
Ég átti smá spergilkál sem ég bætti við að þessu sinni. mbl.is/TM

Góð fiskisúpa er réttur sem hressir við ískaldan og dimman janúar. Þessi súpa er í miklu uppáhaldi hjá mér og hana má vel útbúa daginn áður en geyma þá fiskinn sér. 

2 msk. smjör
200 g laukur 
2 hvítlauksrif 
250 g gulrætur 
150 g rauð paprika 
300 g þorskhnakki eða langa 
200 g lax 
500 ml rjómi 
1 l vatn 
2 fiskiteningar eða humarkraftur 
1 dl hvítvín
2 dósir hakkaðir lífrænir tómatar
2 msk. tómatpúrra
1/2 tsk. karrý 
1 msk. fiskikrydd frá Krydd- og tehúsinu 
salt
pipar
 
Saxið grænmetið smátt og steikið upp úr smjörinu uns laukurinn verður glær. Þá er vatnið sett saman við og krafturinn. Látið suðuna koma upp. Þá fer rjóminn og kryddið saman við, tómatpúrran og tómatarnir. Látið suðuna koma aftur upp. Lækkið undir og látið malla í 10 mínútur. Saltið og piprið eftir smekk og bætið hvítvíninu við. Setjið svo fiskinn út í vel heita súpuna 10 mínútum áður en súpan er borin á borð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert