Marokkóskur kjúklingur með bökuðum sítrónum og couscous

Girnilegur matur þarf ekki að taka marga klukkutíma í undirbúningi.
Girnilegur matur þarf ekki að taka marga klukkutíma í undirbúningi. mbl.is/

Ragnar Freyr Ingason, betur þekktur sem læknirinn í eldhúsinu, er fyrsti gestakokkurinn hjá kvöldverðarþjónustunni Einn, tveir og elda. Matarvefurinn fékk senda fyrstu uppskriftina sem Ragnar býður þeim, sem kaupa matarpakkana, upp á en hún er ansi auðveld og virkilega bragðgóð. 

Marokkóskur kjúklingur með bökuðum sítrónum og couscous-salati
Fyrir 2
Eldunartími ca. 40 mínútur

6 stk. kjúklingaleggir 
4 tsk. marokkóskir draumar 
1 stk. sítróna 
200 g couscous  
1 teningur kjúklingakraftur  
5 stk. döðlur 
2 msk.. fetaostur 
1/2 stk. rauðlaukur 
1 grein mynta 
salt 
pipar
olífuolía

Stilltu ofninn á 180 gráður
1. Skolið og þerrið kjúklingaleggina og setjið í skál. Bætið jómfrúarolíunni saman við ásamt kryddblöndunni og saltið og piprið.
2. Færið yfir í eldfast mót. Skerið sítrónuna í átta báta og leggið meðfram kjúklingnum. Bakið í 180 gráðu heitum forhituðum ofni í 35-40 mínútur.
3. Hitið vatn í potti og bætið kjúklingakraftinum saman við. Hitið að suðu. Setjið kúskúsið í skál og hellið vatninu þannig að fljóti aðeins yfir. Setjið plastfilmu yfir og látið standa í fimm mínútur.
4. Skerið döðlurnar niður og bætið saman við kúskúsið ásamt fetaostinum, rauðlauknum og niðursneiddri myntu. Smakkið til með jómfrúarolíu, salti og pipar.
5. Berið fram og njótið.

Jón Arnar hjá Einn, tveir og elda og Ragnar Freyr …
Jón Arnar hjá Einn, tveir og elda og Ragnar Freyr hamast í eldhúsinu. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert