Mozzarellafylltar brauðbollur

Girnilegar bollur eins og Svövu einni er lagið.
Girnilegar bollur eins og Svövu einni er lagið. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Það er fátt dásamlegra en nýbakaðar bollur fylltar með mozzarella-osti. Hér gefur að líta eina einföldustu og bestu bolluuppskrift sem við höfum augum litið en það er hún Svava Gunnars á Ljúfmeti og lekkerheit sem á heiðurinn að henni.

Mozzarellafylltar brauðbollur

Hér heima kolféllu allir fyrir þessu brauði og það er nú viku síðar enn verið að tala um hvað það var gott. Brauðbollurnar passa æðislega vel með súpum en þær eru í raun góðar með hverju sem er… og líka einar og sér! Jafnvel með pizzasósu til að dýfa þeim í þar sem þær minna á ostafylltar brauðstangir. Ég notaði tilbúið pizzadeig í bollurnar og lét þær ekkert hefast. Rúllaði bara brauðinu utan um ostinn, raðaði í form, setti hvítlaukssmjör, krydd og ost yfir áður en það fór inn í ofn. Einfalt og brjálæðislega gott!

  • 1 rúlla af pizzadegi fyrir þykkan botn (eða annað pizzadeig)
  • 20 stykki (tæplega 2 pokar) af fersku mozzarella (litlu kúlunum)
  • smjör
  • hvítlauksrif
  • pizzakrydd
  • rifinn ostur

Rúllið deiginu út og skerið það í 20 bita. Látið renna af ostinum. Vefjið hverjum deigbita utan um mozzarella-kúlu og rúllið í kúlu, þannig að deigið hjúpi ostinn alveg. Endurtakið með alla deigbitana (það munu verða 4 kúlur eftir af ostinum, sem hægt er að borða á meðan eða geyma). Smyrjið eldfast mót eða kökuform (ég notaði 20 cm kökuform og klæddi botninn með bökunarpappír) og raðið kúlunum í formið. Bræðið smör og pressið hvítlauksrif yfir. Penslið blöndunni yfir brauðbollurnar. Kryddið með pizzakryddi og endið á að strá smá rifnum osti yfir. Bakið við 225° í um 15 mínútur.

Bollurnar eru sérstaklega góðar með súpum.
Bollurnar eru sérstaklega góðar með súpum. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert