Heitustu húsráð Heimilistóna

Hanna Andrésdóttir

Hljómsveitin Heimilistónar þykir með þeim skemmtilegri á landinu en á laugardaginn keppir hún til úrslita í undankeppni söngvakeppninnar en hún samanstendur af fjórum stórleikkonum sem almennt þykja afskaplega lekkerar og yrðu sannarlega verðugir fulltrúar lands og þjóðar í aðalkepninni sem fram fer í Portúgal í maí.

Heimilistóna skipa þær Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, en hljómsveitin var stofunð árið 1997 þegar þær störfuðu allar í Þjóðleikhúsinu. Halldóra Björnsdóttir var ein af stofnliðsmönnum en hún setti svuntuna í skúffuna árið 2003 og tók Katla Margrét þá við.

Uppákomur þeirra og böll þykja sérlega skemmtileg og þátttaka þeirra í söngvakeppninni í ár þykir bráðskemmtileg og vel heppnuð. Vart er það barn í landinu sem ekki hefur heyrst raula „kúst og fæjó” og spennandi verður að sjá hvernig úrslitin verða á laugardaginn. Ekki spillir fyrir að þær eru afskaplega heimilislegar og því var ekki úr vegi að fá þær til að deila sínum uppáhaldshúsráðum með lesendum Morgunblaðsins.

Rispubaninn

Við notum alltaf valhnetur til að pússa rispur á viðarhúsgögnum og parketi. Þá er afar mikilvægt að nudda hnetunni í rispuna og bíða í smá tíma áður en þurrkað er yfir með þurrum klút. Rispan hverfur eins og dögg fyrir sólu.

Frosin vínber

Eitt skothelt húsráð er að frysta vínber og nota í staðinn fyrir klaka. Þetta er bæði afskaplega elegant og snjallt því þetta kemur í veg fyrir að það komi vatnsbragð af drykknum sem er auðvitað afskaplega mikilvægt.

Táfýlutöfrabragðið

Besta leiðin til að til að losna við leiðindatáfýlu er að setja vel af matarsóda í skóna. Lyktin hverfur eins og dögg fyrir sólu en passið að þurrka innan úr skónum áður en þið farið í þá þannig að þið verðið ekki þakin matarsóda á fótunum. Það er ekki smart.

Of þröngir skór

Margur lendir í því að kaupa of þrönga skó eða þrútna um of á fótunum. Besta leiðin til að víkka skóna er að setja vatn í poka, setja svo pokann ofan í skóna og stinga í frysti.

Súpan of sölt!

Ef súpan verður of sölt er frábært að setja út í hana hráa kartöflu eða epli. Svo er súpan látin sjóða í tíu mínútur eða svo áður en kartaflan eða eplabitinn er veiddur upp úr. Virkar alltaf!

Ostaveisla

Það er ákaflega snjallt að frysta afganga af ostum. Ef maður kaupir til dæmis úrval af vönduðum ostum í Frakklandi er afar gáfulegt að frysta þá. Fyrir vikið á maður alltaf úrvalsosta fyrir kósíkvöld með stelpunum.






Hanna Andrésdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert