Það var mikið um dýrðir þegar sýningin Allir fuglar úr eggi skríða var opnuð á föstudaginn. Boðið var upp á ætilegan eggjagjörning í boði Áslaugar Snorradóttur og Matarvefurinn var sérlega spenntur að sjá hvað meistari Áslaug myndi bjóða upp á. Áslaug stóð fyllilega undir væntingum eins og við var að búast og útkoman var í meira lagi skemmtileg.
Omnom kynnti jafnframt sérlöguð súkkulaðiegg, Reykjavík Letterpress verpti eggjum og Birna Geirfinnsdóttir var með innsetningu þar sem hún raðaði saman teikningum Ránar Flygenring og Benedikts Gröndal af fuglum og eggjum svo að fátt eitt sé nefnt.