Hlekkur

Lambakóróna með garðablóðbergssósu

Nóg fyrir 6

Krydd
  • ½ búnt dill
  • ½ búnt graslaukur
  • ½ búnt basilika
  • dass af sjávarsalti
  • 100 g Panko-raspur
  • 50 ml olía
  • kornsinnep (fer ekki í matvinnsluvélina)

Aðferð:

  1. Setjið allt í matvinnsluvél, nema olíuna sem kemur síðast og er hellt út í í mjórri bunu. Raspurinn verður þá fallega grænn.
  2. Brúnið lambarifin á pönnu upp úr olíu. Smyrjið kjötið síðan með kornsinnepi og veltið því upp úr kryddjurtaraspinum.
  3. Eldið svo í ofni á 180°C í 12 mínútur og hvílið í stutta stund. Ef mældur er kjarnhiti er flott að ná 58-59°C og hvíla. Skerið því kórónu næst í sneiðar.

Meðlæti

  • kartöflusmælki
  • gulrætur
  • sveppir
  • perlulaukur
  • grænkáli
  • lambasoðgljá
Gott er að setja grænmetið í ofn með olíu eða pönnusteikja.

Garðablóðbergssósa

  • 1 skarlottslauksgeiri
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 grein af garðablóðbergi
  • 1 dl gott rauðvín
  • 1 l gott nautasoð
  • 100 g smjör
  • salt
  • pipar
  • annað krydd eftir smekk

Aðferð:

  1. Svitið skarlottlaukinn og hvítlaukinn á pönnu.
  2. Rífið af einni grein af garðablóðbergi og svitið með. Hellið rauðvíni út á pönnuna og sjóðið niður um helming. Hellið einum lítra af góðu nautasoði út í og sjóðið niður um ¾. Takið sósuna af hitanum þegar hún er orðin þykk og bragðgóð.
  3. Gott er að bragðbæta eftir smekk, t.d. með salti, svörtum pipar, anís, kardimommukryddi og kryddjurtum. Í lokin eru 100 g af smjöri skorin í kubba og blandað við sósuna með töfrasprota.