Instagram hefur breytt svo mörgu eftir að það kom á kortið. Við fylgjumst með fólki og fyrirtækjum sem aldrei fyrr og fáum innblástur og afþreyingu beint í æð. Ein af þessum síðum sem við elskum að skoða er _wohnblock_.
Hún heitir Franziska og setur inn fallegar myndir daglega af ferskum blómum og heimilislífinu. Hún segir það sjálf á síðunni sinni, að ef þú þolir ekki myndir af blómum, hönnun, kökum og kaffi – þá er þetta ekki staður fyrir þig. En þetta er akkúrat síða sem við viljum skoða og við mælum með.