Hnífapör á heimsmælikvarða

Hnífapörin frá Table Noir eru hönnuð fyrir vinsælustu veitingahús heims …
Hnífapörin frá Table Noir eru hönnuð fyrir vinsælustu veitingahús heims – og þig. mbl.is/Table Noir

Ef þig langar í hnífapör eins og vinsælustu veitingahús heims nota þá eru þau fundin. Danska fyrirtækið Table Noir sérhæfir sig í að finna flottustu veitingastaði víða um heiminn og hannar fyrir þá einstök hnífapör sem áhugakokkar eins og þú geta eignast.

Nýverið hannaði Table Noir glæsileg hnífapör fyrir veitingahúsið Barr í Kaupmannahöfn í samstarfi við norska arkitekta- og hönnunarfyrirtækið Snøhetta. Þess má geta að á síðasta ári varð Michelin-veitingastaðurinn 108 fyrir valinu, en þau hnífapör slógu svo rækilega í gegn að þau enduðu sem útstilling á listasafni í Danmörku. Þeir sem vilja dekka upp borð með hnífapörum á heimsmælikvarða geta fjárfest í slíkum á tablenoir.com.

Nýjasta viðbótin frá Table Noir eru steinþvegin hnífapör hönnuð af …
Nýjasta viðbótin frá Table Noir eru steinþvegin hnífapör hönnuð af Snøhetta fyrir veitingastaðinn Barr í Kaupmannahöfn. mbl.is/Table Noir
Ávalar línur einkenna hnífapörin.
Ávalar línur einkenna hnífapörin. mbl.is/Table Noir
Nú getur þú lagt á borð eins og á sönnum …
Nú getur þú lagt á borð eins og á sönnum Michelin-veitingastað. mbl.is/Table Noir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert