Heimagert krap fyrir krakkagemlinga

Heimagert krap mun gefa foreldrum rokkstig í kladdann.
Heimagert krap mun gefa foreldrum rokkstig í kladdann. mbl.is/BBC

Krap er eitt af því sem allir krakkar elska og ósjaldan sem það gefur gott „brain-freeze“ í leiðinni. Þetta er upplagt að prófa með krökkunum á heimilinu, og gott er að byrja á þessu deginum áður þó að það megi vel framkvæma sama morgun og bera á krapið fram.

Heimagert krap

  • Vatnsmelóna
  • 225 g jarðaber, skerið toppinn af
  • 2 lime

Aðferð:

  1. Skerið rauða hluta melónunnar í bita og fjarlægið alla steina. Setjið helminginn í poka og inn í frysti yfir nótt eða í nokkra klukkutíma.
  2. Takið melónuna úr frysti og maukið saman við hinn melónuhlutann, jarðarberin og safann úr lime-ávöxtunum þar til allt er orðið mjúkt og „slushy“.
  3. Hellið í glös og drekkið með röri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert