Hráefnið sem Martha Stewart notar aldrei

Martha Stewart vill ekki sjá truffluolíu í eldhúsinu sínu.
Martha Stewart vill ekki sjá truffluolíu í eldhúsinu sínu. mbl.is/Martha Stewart

Það er misjafn smekkur manna þegar kemur að matargerð, og þekktustu kokkar heims eru þar engin undantekning. Martha Stewart hefur mjög sterkar skoðanir á ákveðnu hráefni og vill ekki sjá það í eldhúsinu sínu.

Þetta umrædda er truffluolía! Martha meinar að olían hreinlega festist við bragðlaukana og þar fyrir utan er þetta eitthvað sem er búið til, því það eru engar trufflur í truffluolíu. Og þar situr ekkert við því Gordon Ramsay tekur í sama streng og kallar truffluolíu einfaldlega kjánalegt hráefni og notar það ekki heldur.

Súkkulaðikaka að hætti Martha Stewart.
Súkkulaðikaka að hætti Martha Stewart. Pinterest.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert