Oreo ostakaka upp á tíu

mbl.is/Frederikke Wærens

Hvar eigum við að byrja? Þessi kaka nær út fyrir öll mörk og mun veita öllum Oreo-unnendum ómælda ánægju. Ostakaka sem þú munt aldrei gleyma og er klárlega fyrir alla nautnaseggina þarna úti. 

Oreo-ostakaka með súkkulaðimús

Kexbotn

  • 200 g Oreo
  • 100 g smjör, bráðið

Rjómaostakrem

  • 400 g rjómaostur
  • 120 g flórsykur
  • Korn úr 2 vanillustöngum
  • ½ l rjómi
  • 2 msk. sítrónusafi
  • Oreo-kex, grófhakkað

Súkkulaðimús

  • 3 blöð af gelatín
  • 300 g súkkulaði
  • 2 msk. smjör
  • 4 eggjarauður
  • 6 dl rjómi

Skraut

  • 2 dl rjómi
  • 100 g Oreo, hakkað
  • 10 stk. (sirka) Oreo
  • Fersk hindber eða önnur ber

Aðferð:

Kexbotn

  1. Hakkið Oreo-kexið fínt í matvinnsluvél. Bræðið smjörið og blandið vel saman við kexið. Hellið kexblöndunni í smelluform (23 cm). Pressið vel niður í botninn og setjið formið í kæli á meðan þú gerir ostakremið.

Rjómaostakrem

  1. Pískið rjómaost, vanillu, flórsykur og sítrónusafa í skál. Pískið rjómann í annarri skál. Blandið rjómanum við ostakremið og setjið grófhakkaða Oreo-kexið út í. Klæðið smelluformið með kökuplasti (notað til að halda kökunni sléttri og beinni) og smyrjið rjómaostakreminu á kexbotninn. Setjið aftur í kæli.

Súkkulaðimús

  1. Leggið gelatínið í kalt vatn. Bræðið smjör og súkkulaði í skál yfir vatnsbaði. Hitið 2 dl af rjóma upp að suðu í öðrum potti. Takið smjörið og súkkulaðið af hitanum þegar það er bráðið og bætið heita rjómanum út í og pískið saman. Setjið gelatínið út í súkkulaði- rjómablönduna. Pískið því næst eggjarauðunum út í og látið kólna. Pískið 4 dl af rjóma og blandið því varlega út í súkkulaði- rjómablönduna. Hellið súkkulaðimúsinni yfir ostakremið og setjið kökuna aftur í kæli, í minnsta kosti 6 tíma eða yfir nótt.

Skraut

  1. Þeytið rjómann og blandið hökkuðu Oreo-kexi út í. Setjið rjómann í sprautupoka. Takið kökuna úr smelluforminu og kökuplastinu og skreytið kökuna með Oreo-rjóma, berjum og heilum Oreo-kexkökum.
Ostakökudraumur með Oreo-orgíu.
Ostakökudraumur með Oreo-orgíu. mbl.is/Frederikke Wærens
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert