Beri bakarinn með 385 þúsund fylgjendur á Instagram

Bakarinn sem byrjaði ferilinn í hálfgerðu gríni og endaði sem …
Bakarinn sem byrjaði ferilinn í hálfgerðu gríni og endaði sem stórstjarna. mbl.is/Instagram

Það verður ekki hjá því komist að kynnast þessum unga myndarlega bakara aðeins nánar, sem virðist vera ansi lunkinn við baksturinn á meðan hann situr fyrir ber að ofan.

Matt er ekki nema 26 ára gamall, hálfnakinn og bakar eins og enginn sé morgundagurinn. Hann byrjaði að blogga undir nafninu „Toplessbaker“ sem var í upphafi meira gert í gríni en alvöru, en starfar við það að fullu í dag - vinsældir hans eru lygilegar. Kökurnar hans og kræsingar eru ekki af verri endanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

mbl.is/Instagram
Súkkulaði-fingur með létt „grilluðum“ marengs.
Súkkulaði-fingur með létt „grilluðum“ marengs. mbl.is/Toplessbaker.com
Gylling í makrónu og á berinu setur punktinn yfir i-ið.
Gylling í makrónu og á berinu setur punktinn yfir i-ið. mbl.is/Toplessbaker.com
Sætar litlar sítrónukökur með marengstoppi.
Sætar litlar sítrónukökur með marengstoppi. mbl.is/Toplessbaker.com
mbl.is/Toplessbaker.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert