Gamla góða Berlínarbollan sem allir elska

mbl.is/María Gomez

Hér getur að líta hina klassísku berlínarbollu sem á alltaf vel við á bolludaginn. Ef það á að flippa eitthvað aðeins þá er þetta það sem kallast skothelt flipp. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is.

Berlínarbolla

  • Einn pakki af Toro Hveteboller-dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
  • 1 pakki vanillu Royal-búðingur
  • Hindberjasulta
  • 2,5 dl nýmjólk
  • 2,5 dl rjómi
  • Flórsykur

Aðferð:

  1. Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum.
  2. Gerið svo vanillubúðing með 1 pakka búðing, 2,5 dl rjóma og 2,5 dl nýmjólk.
  3. Setjið svo hindberjasultu á botninn og vanillubúðing ofan á.
  4. Lokið bollunni og stráið flórsykri yfir með sigti.
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert