Viltu matjurtagarð í sumar?

„Aðsókn í matjurtagarða á vegum Reykjavíkurborgar er almennt mjög góð og plássin eru fljót að hverfa á vorin,“ segir Guðný Arndís Olgeirsdóttir, umsjónarmaður matjurtagarða í Reykjavík. Íbúar í Reykjavík geta pantað matjurtagarð til afnota og var í dag opnað fyrir umsóknir á reykjavik.is/matjurtagardar.

Matjurtagarðar sem borgin leigir út eru víða um borgina. 

  • Vesturbær við Þorragötu
  • Fossvogur við enda Bjarmalands
  • Laugardalur við enda Holtavegar
  • Árbær við Rafstöðvarveg
  • Grafarvogur við Logafold

Reykjavíkurborg útdeilir einnig garðlöndum í Skammadal í Mosfellsbæ, en þar eins og með fjölskyldugarðana njóta forgangs þeir sem leigðu garð í fyrra. Á þessum framantöldu stöðum eru 553 garðar og verða þeir afhentir leigjendum 1. maí eða fyrr ef veður leyfir. 

Leiga fyrir garða er óbreytt frá fyrra ári. Leiga fyrir garðland í Skammadal er 5.000 kr. og skiki í fjölskyldugörðunum kostar 4.800 kr. Garðarnir í Logafold verða á 3.400 kr. kassinn (8 fermetrar) og er reiknað með að leigja út tvo kassa sem einn garð sem yrði þá 6.800 kr. (16 fermetrar).

Garðar í Breiðholti við Jaðarsel eru í rekstri hjá félaginu Seljagarður og þá sér Garðyrkjufélag Íslands um rekstur matjurtagarða í Stekkjarbakka og Grafarvogi.

Nýjungar við Logafold

Við Logafold hafa verið gerðar breytingar á matjurtagörðunum, en settir voru upp ræktunarkassar til að auðvelda notendum að láta græna fingur njóta sín án þess að bogra niðri við jörð. Flestir eru kassarnir 40 cm háir, en hluti þeirra eru 70 cm á hæð. „Nú geta fatlaðir og eldra fólk nýtt sér aðstöðuna með auðveldari hætti og svo er það auðvitað léttara fyrir alla aðra,“ segir Guðný. Kassarnir eru 8 fermetrar og verða þeir alla jafna leigðir út tveir og tveir saman, alls 16 fermetrar. 

Guðný segir að breytingarnar í Logafold séu tilraun. „Draumurinn hjá okkur er að taka alla okkar garða í gegn og setja þá upp svona eins og þessa. Vonandi getum við haldið áfram í ár og tekið einn garð eða fleiri á ári,“ segir Guðný. Komi aðsókn til með að aukast og sé fólk ánægt með hvernig til tókst verður það skoðað hvort hægt sé að fara í sambærilegar framkvæmdir á fleiri stöðum í borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert