Svona verður þvotturinn mjallhvítur með leynivopni úr eldhúsinu

Það eru stórvísindi hvernig við náum þvottinum hvítum á ný.
Það eru stórvísindi hvernig við náum þvottinum hvítum á ný. mbl.is/idényt

Hvítar flíkur eiga það til að grána og missa þennan „bjarta sjarma“ yfir sér. Það eru til ótal efni úti í búð sem eiga að leysa þennan vanda, en leynivopnið er líka til í skúffunum heima í eldhúsinu.

Eina sem þú þarft að gera er að setja eina fulla matskeið af lyftidufti í vélina er þú þværð á 30°C-40°C. Annars 2-3 matskeiðar ef þú setur þvottinn á suðuprógram. Einfalt og ódýrt og vel þess virði að prófa.

Lyftiduft er allt sem til þarf til að gera þvottinn …
Lyftiduft er allt sem til þarf til að gera þvottinn hvítan. mbl.is/Arla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert