Sjóðheitar nýjungar frá IKEA

Okkur getur farið að hlakka til að sjá þessar nýjungar …
Okkur getur farið að hlakka til að sjá þessar nýjungar frá IKEA. mbl.is/IKEA

Þó að sumarið sé hæst á lofti fáum við að reka nefið inn hjá IKEA og sjá hvað er væntanlegt í haust, eða nánar tiltekið í október. Keramík, pappírslampar, kollur og ný munstur í textíl er á meðal þess sem við sjáum – og allt á hóflegu verði eins og IKEA einum er lagið.

Falleg keramík sem bæði má nota sem könnu í eldhúsið …
Falleg keramík sem bæði má nota sem könnu í eldhúsið eða sem fallegan blómavasa. mbl.is/IKEA
Þessar framhliðar á innréttingunni heita Bodap og eru framleiddar úr …
Þessar framhliðar á innréttingunni heita Bodap og eru framleiddar úr gömlum plastflöskum. Liturinn er einstaklega smart og höldurnar líka. mbl.is/IKEA
Þríhyrndur kollur sem kallast „Kyrre“. Þessi bíður upp á að …
Þríhyrndur kollur sem kallast „Kyrre“. Þessi bíður upp á að fá smá lit á sig og fá líf t.d. sem hliðarborð. mbl.is/IKEA
Pappírslampar hafa verið meira og meira áberandi síðustu misseri og …
Pappírslampar hafa verið meira og meira áberandi síðustu misseri og hér er einn stór og flottur sem verður væntanlegur í október. mbl.is/IKEA
Kanínur og ber! Er hægt að biðja um krúttlegra munstur …
Kanínur og ber! Er hægt að biðja um krúttlegra munstur fyrir yngstu kynslóðina. Munstrið verður fáanlegt á teppi, sængurverum og taubleyjum. mbl.is/IKEA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert