Nýja IKEA eldhúsið þykir ævintýralegt

Nýtt eldhús frá IKEA fyrir yngstu kokkana á heimilinu. Í …
Nýtt eldhús frá IKEA fyrir yngstu kokkana á heimilinu. Í þessu eldhúsi gerir þú meira en að baka brauð. mbl.is/Ikea

Litlu kokkarnir á heimilinu þurfa líka sitt eldhús en IKEA kynnir nýtt leikfangaeldhús sem býður upp á fleiri möguleika en að baka brauð.

Eldhúsið kallast „Spisig“ og inniheldur vask, helluborð, skáp og ofn. Í þessari útfærslu er enginn örbylgjuofn eins og svo oft má sjá í krakkaeldhúsum, í staðinn er stór gluggi með gardínum. En það sem einkennir eldhúsið og gerir það svo skemmtilegt er að hér snýst allt um ímyndunaraflið. Ef eldhúsinu er snúið við er hægt að nota það sem dúkkuleikhús eða sem veitingastað eða verslun – krítartafla er á bakhliðinni þar sem krota má tilboð dagsins eða jafnvel útbúa verðlista.

Þegar eldhúsinu er snúið við má nota það sem dúkkuleikhús.
Þegar eldhúsinu er snúið við má nota það sem dúkkuleikhús. mbl.is/Ikea
Hér er eldhúsið sem kaffihús - eða allt það sem …
Hér er eldhúsið sem kaffihús - eða allt það sem hugurinn leiðir börnin í leik. mbl.is/Ikea
Mjög skemmtilegt og sniðugt að hafa krítartöflu á bakhliðinni.
Mjög skemmtilegt og sniðugt að hafa krítartöflu á bakhliðinni. mbl.is/Ikea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert