Er ristað brauð óhollt?

Margir byrja daginn á ristuðu brauði en er ristað brauð …
Margir byrja daginn á ristuðu brauði en er ristað brauð óhollt? mbl.is/Colourbox

Ilmurinn af ristuðu brauði í morgunsárið er það allra besta. En hvað gerist með brauðið þegar við setjum það í brauðristina?

Það er eitthvað alveg sérstakt við ristað brauð – sérstaklega þegar smjörið bráðnar á heitu brauðinu svo ekki sé minnst ostinn. En þegar þú ristar, steikir eða bakar mat sem inniheldur mikið af kolvetnum, eins og t.d. brauð – þá myndast efnið akrýlamíð sem þykir ekki það allra besta fyrir kroppinn. Jafnvel eitthvað af vítamínum brauðsins mun hverfa þegar það er ristað. Þér mun einnig finnast þú vera lengur saddur af ristuðu brauði en óristuðu.

Þá er svarið við stóru spurningunni hvort ristað brauð sé óhollt – „bæði og“.

Ferskt brauð

  • Mjög lítið akrýlamíð.
  • Ekki gott fyrir blóðsykurinn.

Létt ristað brauð

  • Inniheldur lítið akrýlamíð.
  • Lítil blóðsykuráhrif.

Ristað brauð

  • Ágætt fyrir blóðsykurinn.
  • Mikið Akrýlamíð.

Mikið ristað brauð

  • Inniheldur það mikið akrýlamíð að ekki er mælt með að borða brauðið.
mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert