Við sögðum ykkur frá því á dögunum að væntanleg væri ný lína frá Le Creuset sem væri tileinkuð Star Wars. Samkvæmt fyrstu heimildum voru þetta ógnarfagrir pottar sem hver einasti aðdáandi söguheims George Lucas ætti að elska.
Búið er að afhjúpa alla línuna og þar leynast þessir tveir gripir sem við höldum vart vatni yfir.