Ebba með námskeið fyrir ungbarnaforeldra

Ebba Guðný Guðmundsdóttir.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hin eina sanna Ebba Guðný Guðmundsdóttir, höfundur metsölubókarinnar Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? verður með námskeið á morgun fyrir foreldra sem vilja læra réttu handtökin.

Ebba segir að námskeiðið nýtist öllum í fjölskyldunni þar sem mataræði barna er auðvitað í grunninn það sama og fyrir fullorðna. „Þar að auki er gott að nota meðbyrinn sem skapast þegar byrjað er að gefa litlu barni að borða af því allir á heimilinu eru svo innblásnir af því að reyna að vanda vel til verksins. Á þessum tímapunkti skapast grundvöllur til að taka mataræði allra í fjölskyldunni til athugunar og breyta og bæta þar sem það á við,“ segir Ebba en bókin hefur hjálpað þúsundum foreldra í gegnum tíðina.  

„Allir foreldrar vilja eingöngu það besta fyrir börnin sín. Þegar lítið barn fæðist er efst á baugi hjá foreldrum að hugsa eins vel um það og þeim er unnt, elska það og virða enda er ástúð og hlýja foreldra til barna sinna það sem skiptir mestu máli til að börn þeirra þroskist og dafni vel og eðlilega,“ segir Ebba sem þreytist seint á að boða hollar áherslur í mataræði barna en á námskeiðinu ætlar hún að fara yfir það sem reynslan hefur kennt henni að skipti mestu máli varðandi næringu og bætiefni fyrir börn sem eru að vaxa úr grasi. 

Námskeiðið nýtist öllum í fjölskyldunni þar sem mataræði barna er auðvitað í grunninn það sama og fyrir fullorðna. Þar að auki er gott að nota meðbyrinn sem skapast þegar byrjað er að gefa litlu barni að borða af því allir á heimilinu eru svo innblásnir af því að reyna að vanda vel til verksins. Á þessum tímapunkti skapast grundvöllur til að taka mataræði allra í fjölskyldunni til athugunar og breyta og bæta þar sem það á við. 

Leiðbeiningarnar á námskeiðinu eru einfaldar og settar fram þannig að foreldrar skilji af hverju mataræði og sum bætiefni skipta máli í andlegri og líkamlegri heilsu barna. 

Hægt er að bóka pláss á námskeiðið HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert