Heimagert múslí með eplabitum

Heimagert múslí með eplabitum mun setja línurnar út í daginn.
Heimagert múslí með eplabitum mun setja línurnar út í daginn. mbl.is/Colourbox

Allt sem er heimagert verður oftar en ekki betra á bragðið. Hér bjóðum við upp á múslí með þurrkuðum eplabitum - fullkomið til að hefja daginn.

Heimagert múslí með eplabitum

Þurrkuð epli:

  • 1 kg epli
  • 1 sítróna

Múslí:

  • 50 g valhnetukjarnar
  • 50 g kókosflögur
  • 200 g haframjöl
  • 2 msk english breakfast-telauf
  • 50 g sólblómakjarnar
  • 50 g graskerskjarnar
  • 50 g pekanhnetur
  • 150 g fljótandi hunang
  • 100 g þurrkuð epli

Aðferð:

  1. Skerið eplin í litla bita og dreipið sítrónusafa yfir. Leggið á bökunarpappír.
  2. Þurrkið eplin inn í ofni við 80°C í 4 tíma.
  3. Látið kólna og setjið í krukku með þéttu loki. Geymið á köldum dimmum stað.

Múslí:

  1. Saxið valhneturnar og kókosflögurnar gróflega.
  2. Blandið öllum hráefnunum saman fyrir utan eplateningana og passið að hunangið dreifist jafnt yfir allt.
  3. Setjið múslíblönduna á bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið vel úr því. Bakið í ofni við 170°C í 10 mínútur.
  4. Veltið múslínu og bakið áfram í 5 mínútur.
  5. Látið alveg kólna áður en eplabitunum er bætt saman við.
  6. Njótið með hreinni jógúrt eða öðru sem hugurinn girnist.
mb.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert