Krúttlegustu matarbúningar sem sést hafa

Flottur tvíburabúningur.
Flottur tvíburabúningur. mbl.is/amazon.com

Hver elskar ekki skemmtilega búninga á börnin? Það virðist vera til nóg af þeim á helstu netsölum heims.

Salt og pipar, tómatsósa, sushi-biti eða það allra skondnasta sem við rákum augun í, en það er búningur á minnstu kynslóðina sem maísstöngull. Eins erum við að sjá lítil núðlukrútt með haug af nýsoðnum núðlum á kollinum, hver myndi ekki elska að klæða barnið sitt í slíkan klæðnað – eða hvað?

Flesta búningana má finna á Amazon eða Etsy sem þekktir eru fyrir heilan fjársjóð af alls kyns óþarfa sem gaman er að kaupa.

Sætar og búttaðar núðlur.
Sætar og búttaðar núðlur. mbl.is/etsy.com
mbl.is/amazon.com
Tveir af uppáhalds sushi-bitunum okkar!
Tveir af uppáhalds sushi-bitunum okkar! mbl.is/etsy.com
Má bjóða þér salt og pipar?
Má bjóða þér salt og pipar? mbl.is/etsy.com
Cappucino með þeyttum rjóma er sætur búningur.
Cappucino með þeyttum rjóma er sætur búningur. mbl.is/partycity.com
Hér sjáum við ís með dýfu og ber á toppnum.
Hér sjáum við ís með dýfu og ber á toppnum. mbl.is/amazon.com
Þessi búningur er algjört met! Elsku barnið er klætt upp …
Þessi búningur er algjört met! Elsku barnið er klætt upp eins og maísstöngull. mbl.is/amazon.com
mbl.is/amazon.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert