Mathallir opna á ný

Grandi mathöll.
Grandi mathöll. mbl.is/

Mathallirnar á Hlemmi  og Granda hafa opnað á ný að því að fram kemur í tilkynningu. Fyrst um sinn verða mismunandi opnunartímar hjá stöðum en verða svo samræmdir eftir því sem samfélagið kemst í eðlilegra horf.

Á Hlemmi er búið að byggja vegg og skipta því Mathöllinni í tvö 50 manna rými. Á Granda eru einnig tvö rými sem geta hýst 50 manns hvort um sig. Ekki má svo gleyma útiborðum sem eru kærkomin á sólríkum dögum.

Talið er inn í Mathallirnar og tveggja metra reglan er að sjálfsögðu í gildi.

Snertifletir eru hreinsaðir og spritt í boði fyrir alla gesti.

OPNUNARTÍMAR NÆSTU DAGA HJÁ MATHÖLLINNI Á HLEMMI

  • BRAUÐ & CO: Kl. 8:00 – 16:00.
  • TE & KAFFI: Kl. 8:00 – 17:00.
  • FLATEY PIZZA: Kl. 11:30 – 21:00.
  • SKÁL: Kl. 17:00 – 21:00.
  • BANH MI: Kl. 11:00 – 20:00.
  • FUEGO: Mán – Lau Kl. 17:00 – 21:00. Lokað Sunnudag.
  • KRÖST: Mán – Mið Kl. 12:00 – 21:00. Fim – Lau Kl. 12:00 – 22:00. Lokað Sunnudag.
  • TIL SJÁVAR & TIL SVEITA: Þri – Mið Kl. 11:00 – 21:00. Fim – Sun Kl. 11:00 – 22:00. Lokað Mánudag
  • OSTERIA EMILIANA: Lokað.

OPNUNARTÍMAR NÆSTU DAGA HJÁ GRANDA MATHÖLL

  • FJÁRHÚSIÐ: Kl. 11:00 – 21:00.
  • HÆNSNAKOFINN: Kl. 11:00 – 21:00.
  • FRYSTIHÚSIÐ H13: Kl. 11:00 – 21:00.
  • GASTRO TRUCK: SUN – FIM Kl. 11:30 -21. FÖS – LAU Kl. 11:30 – 21:30
  • KORE: Kl. 11:30 – 21:00
  • SPES KITCHEN: Kl. 11:30 – 21:00
  • SKJALDBAKAN: 17:30 – 21:00
  • LAX: LOKAÐ
Hlemmur Mathöll.
Hlemmur Mathöll. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert