Smáréttur upp á tíu

Smáréttur af bestu gerð. Notaðu hugmyndaflugið og skreyttu með því …
Smáréttur af bestu gerð. Notaðu hugmyndaflugið og skreyttu með því sem bragðlaukarnir kalla á hverju sinni. mbl.is/Colourbox

Hér er smáréttur sem þú getur notað sem forrétt, sem meðlæti eða borið fram með freyðivínsglasi á pallinum í sumar. Litlar brúsettur með ricottakremi og fíkjum – eða smáréttur sem skorar fullt hús stiga.

Smáréttur upp á tíu

  • 1 gróft snittubrauð
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 stórt hvítlauksrif
  • 3 ferskar fíkjur

Ricottakrem

  • 100 g ricotta
  • ½ tsk flögusalt
  • 2 tsk. ólífuolía

Annað

  • 2 tsk. fljótandi hunang
  • 4 timíangreinar

Aðferð:

  1. Skerið snittubrauðið í 12 penar sneiðar og penslið með ólífuolíu.
  2. Steikið brauðið báðum megin á heitri pönnu þar til gyllt og stökkt.
  3. Skerið hvítlaukinn til helminga og nuddið brauðið með hvítlauknum.
  4. Ricottakrem: Hrærið ricotta saman við salt og ólífuolíu þar til verður að kremi.
  5. Skerið fíkjurnar í fjóra hluta og smyrjið ricottakremi á hverja brauðskífu. Leggið fíkju ofan á hverja brauðsneið og dreypið hunangi yfir.
  6. Berið fram með fersku timían og kryddið jafnvel með salti ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert