Kartöflumeðlæti sem slær alltaf í gegn

Hér erum við að tala um svokallað keppnismeðlæti sem er nauðsynlegt að prófa ...

Kartöflumeðlæti sem slær alltaf í gegn

  • 900 g smáar kartöflur, skornar í tvennt
  • 1-2 msk. ólífuolía
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • ½ hvítlaukssalt
  • ½ bolli gráðostur
  • 2 msk. graslaukur, smátt skorinn
  • 1 msk. söxuð kryddjurt að eigin vali (dill, steinselja, basilíka, óreganó)

Aðferð:

  1. Hitið grillið á hæsta hita. Á meðan grillið er að hitna, útbúið þá tvöfalt lag af kartöflum með álpappír og brettið upp á endana. Setjið kartöflurnar í álpappírsbakkann og dreypið ólífuolíu yfir. Stráið salti, pipar og hvítlaukssalti yfir. Blandið vel saman þannig að hráefnin þeki allar kartöflurnar. Gott er að setja álpappírinn á bökunarplötu svo auðveldara verði að flytja kartöflurnar út á grillið.
  2. Setjið kartöflubakkann á grillið og lokið þvíu. Best er að láta kartöflurnar snúa þannig að skorna hliðin vísi niður til að þær verði stökkari.
  3. Grillið í 15-20 mínútur og hreyfið aðeins við þeim á fimm mínútna fresti.
  4. Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar, stráið þá gráðosti yfir og grillið í eina mínútu eða þar til osturinn er bráðinn.
  5. Takið af grillinu og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert