Albert bjó til æðislegt pestó

Ljósmynd/Albert Eiríksson

„Á dögunum fékk ég hreina ítalska ólífuolíu, OLIO NITTI, sem er ein sú besta sem ég hef prófað. Einnig fékk ég lífrænt ræktaðar möndlur sem fóru í möndlusmjör og hvarf síðan eins og dögg fyrir sólu. Olían og möndlurnar koma beint frá Nitti-fjölskyldunni í Puglia-héraði á Ítalíu. Lífræn, bragðgóð hollusta,“ segir Albert Eiríks um þessa uppskrift en eins og allir vita er nauðsynlegt að luma á góðu pestói í kælinum og helst þarf það að vera heimagert svo hægt sé að ræða fjálglega hvað var auðvelt að búa það til.

Grænkálspestó

  • hnefafylli af grænkáli
  • hnefafylli af basil
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 3 msk. furuhnetur
  • 3-4 msk. parmesanostur
  • mjög góð ólífuolía – OLIO NITTI
  • salt og pipar

Setjið grænkál, basil, hvítlauk, olíu og pipar í matvinnsluvélina og maukið. Skerið ostinn gróft og bætið saman við ásamt hnetum og maukið smá stund. Gott er að mauka ost og hnetur ekki mjög smátt. Bætið við olíu eins og þarf og saltið í lokin. Munið að parmesanostur er saltur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert