Sumar fæðutegundir eru til þess fallnar að gera allt betra og þar er ostur mjög framarlega í flokki. Þess vegna er það nánast skylda að skella í þennan dásamlega hátíðarhring sem er fylltur með Dala-Auði og ætti að valda alsælu ...
Uppskriftin er eftir meistara Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem klikkar ekki fremur en fyrri daginn.
Hátíðarhringur með Dala-Auði
1. Þíðið frosnar smjördeigsplöturnar (ég keypti frosnar frá Findus og notaði tæplega 2 pakka).
2. Skerið plöturnar langsum, horn í horn, til að búa til 16 þríhyrnda hluta.
3. Raðið þeim á bökunarpappír í hring með breiðari endann inn að miðju og setjið alltaf hornið á næsta vel yfir hlutann sem er á undan.
4. Smyrjið með sultu við miðjuna, stráið pekanhnetunum yfir og raðið osti allan hringinn (ég skar hvern ost í 8 hluta og raðaði þétt).
5. Togið síðan mjórri endann á smjördeiginu yfir ostinn og festið í innanverðan hringinn, endurtakið þar til allt smjördeigið hefur verið sett yfir ostinn
6. Penslið með pískuðu eggi og stráið salti og rósmarín yfir.
7. Bakið í 20 mínútur og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr. Osturinn bráðnar svolítið út fyrir hringinn en það er allt í lagi og þið getið skorið hann frá þegar hringurinn hefur aðeins náð að kólna.
8. Hugmyndin kemur frá Tasty og hægt er að horfa á myndband frá þeim hér sem sýnir aðferðina vel. Ég hagræddi þó aðeins uppskriftinni og íslenskaði.