Nýtt fjölnota box frá Ferm Living

Æðislegt nýtt, fjölnota box frá Ferm Living.
Æðislegt nýtt, fjölnota box frá Ferm Living. Mbl.is/Ferm Living

Nýjustu fréttir frá danska vörumerkinu Ferm Living er fjölnota box sem smellpassar undir eldhúsáhöldin.

Boxið er úr dufthúðuðu stáli, með ávalar línur og handfang, svo auðvelt er að flytja það á milli rýma. Hér ræðir um hið fullkomna box sem hentar undir þrifgræjurnar, ediksbrúsann og tuskur – nú eða eldhúsáhöld, olíur og sósur, skrifstofudót eða jafnvel garðáhöld.

„The Grib Toolbox“ kemur í fjórum fallegum jarðlitum; kasmír, ljósgráu, svörtu og ólífugrænu  litir sem munu setja tóninn fyrir aðrar vörur á komandi ári.

Mbl.is/Ferm Living
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert