„Allt í einu varð hvíta sukkulaði okkar svart!“

Black N´Burnt Barley komið í nýjan búning

Á þeim sjö árum frá því að Omnom var stofnað hefur súkkulaðigerðin nokkrum sinnum hætt framleiðslu súkkulaðistykkja eða breytt og betrumbætt uppskriftir. Ástæðurnar eru oft misjafnar, stundum vegna þess að ákveðin hráefni í uppskrift verða ófáanleg eða að hráefni mæta ekki þeim stöðlum sem Omnom hefur sett sér. En fyrst og fremst snýst þetta um bragð, að bragðið sé nógu gott.
 
„Upprunalega hugmyndin fyrir Black n´Burnt Barley var að þróa klassískt hvítt súkkulaði með dass af karamellutónum. Eftir nokkrar umferðir, fyrir einstaka tilviljun, duttum við niður á sérstaka tegund af ristuðu byggi sem yfirleitt er notað við bruggun á porter og stout-bjórum," segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður. „Þessi óvænta viðbót umbreytti öllu við súkkulaðið sem var í þróun, og allt í einu varð hvíta súkkulaði okkar svart! Byggið gaf súkkulaðinu ristaðan keim og grófari áferð, ásamt vægum tónum af lakkrís og kaffi. Algjörlega ólíkt öllu öðru sem við höfðum smakkað áður," segir hann enn fremur.

Í súkkulaðinu eru tvær mismunandi tegundir af byggi, malt hveiti, mjólkur duft, sjávarsalt og leynihráefnið, virkjuð kol, sem gefur súkkulaðinu þennan einkennandi lit. Til að kóróna upplifunina, er poppað bygg frá Vallanesi ofan á súkkulaðinu til að gefa bragðupplifuninni aukinn stökkleika.

Í þróunarferlinu voru ýmsar leiðir prófaðar, en ein af þeim var að sleppa mjólkinni í uppskriftinni og notast þess í stað við ögn meira af byggi. Sú útfærsla gaf súkkulaðinu mun einbeittara og kröftugra bragð. Án mjólkur voru allir bragðtónar skýrari, þó súkkulaðið sjálft væri ekki eins kremað. „Við vorum svo fókuseruð á að fylgja hinni klassísku uppskrift af hvítu súkkulaði að hugurinn leiddi okkur aldrei áfram í þá átt að leika okkur með þá hugmynd frekar,” segir Kjartan.
 

„Við höfum alltaf fylgt þeim leiðarvísi að besta bragðið stjórnar ferðinni, en sú ákvörðun að sleppa mjólkinni og leyfa bygginu að njóta sín betur, bragðast einfaldlega betur,” útskýrir hann. „Bragðið af bygginu er mun skemmtilegra, meira lifandi og ríkulegt af karakter. Maltið fær að njóta sín betur í samblandi við virkjuðu kolin sem fá veigameira hlutverk. Við munum vissulega sakna þessarar kremkenndu áferðar sem kom með mjólkinni, en í breyttri mynd færir súkkulaðið náttúrulegri og líflegri upplifun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert