Mjúkar bananabollur með súkkulaði

Nýbakaðar bananabollur, namm!
Nýbakaðar bananabollur, namm! Mbl.is/Pinterest

Leyndardómurinn á bak við dúnmjúkar bananabollur, er að setja nóg af banana og örlítið af sætu hunangi í blönduna – þá verður uppskriftin alveg ómótstæðileg. Hér má einnig bæta við 50 g af söxuðum hnetum til að fá enn betra bragð í bollurnar.

Mjúkar bananabollur með súkkulaði

  • 25 g ger
  • 2,5 dl volgt vatn
  • 1 dl hrein jógúrt
  • 2 msk. hunang
  • 2 msk. bráðið smjör
  • 1 tsk. salt
  • 2 egg
  • 3 þroskaðir bananar
  • 9 dl hveiti
  • 3 dl haframjöl
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatni.
  2. Setjið hunang, salt, bráðið smjör, jógúrt og eitt egg í skál, og hrærið vel saman.
  3. Bætið haframjöli og hveiti saman við – en deigið á að vera þykkt og klístrað.
  4. Maukið bananana og saxið súkkulaðið gróflega. Blandið varlega saman við deigið.
  5. Látið hefast við stofuhita í klukkutíma eða yfir nótt í kæli.
  6. Skiptið deiginu upp í 12 bollur með matskeið og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  7. Látið hefast í 30 mínútur.
  8. Penslið með eggi.
  9. Bakið í ofni við 200° í 20 mínútur, eða þar til gylltar á lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert