Tvær pylsur og kók á 500 krónur í dag

Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri Bæjarins beztu.
Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri Bæjarins beztu. Ljósmynd/Aðsend

Bæjarins beztu pylsur opna í nýrri og endurbættri Orkustöð á Dalvegi í dag. Þetta er annar staðurinn sem Bæjarins beztu opna innan veggja Orkunnar en fyrir eru þeir á Orkunni Vesturlandsvegi. Á Dalvegi mun einnig vera afgreitt í gegnum bílalúgu.

„Þetta er fyrsta bílalúgan sem Bæjarins beztu opna og sennilega aldrei verið auðveldara að gæða sér á bestu pylsum bæjarins!“ segir Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri Bæjarins beztu. Í tilefni opnunarinnar verða tvær pylsur og kók á 500 krónur í dag.

Umfangsmiklar framkvæmdir hafa átt sér stað á Orkustöðinni á Dalvegi undanfarnar vikur. „Við lokuðum versluninni tímabundið meðan við tókum hana alveg í gegn og erum spennt að opna nýja og endurbætta aðstöðu  vonandi hafa framkvæmdirnar ekki valdið of miklum óþægindum fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Vífill Ingimarsson rekstrarstjóri Orkunnar.

Orkustöðin á Dalvegi er ein vinsælasta bensínstöð landsins, en þar býður Orkan sitt lægsta verð án allra skilyrða, og því mikil umferð af fólki þar daglega. „Við höfum nú þegar uppfært verslanir okkar á Vesturlandsvegi og Suðurfelli og nú var röðin komin að Dalvegi, markmið okkar með endurbótunum er að skapa betri upplifun fyrir viðskiptavini okkar og koma til móts við þá í amstri dagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert