Þreif bakarofninn á meðan hún svaf

Nýjustu fréttir herma að þú getir þrifið ofninn á meðan …
Nýjustu fréttir herma að þú getir þrifið ofninn á meðan þú sefur. mbl.is/

Það er í orðsins fyllstu merkingu draumi líkast að gera húsverkin á meðan við sofum. Hér er gott dæmi um slíkt, þegar kona nokkur þreif ofninn á meðan hún fékk sinn góða nætursvefn.

Hvernig er það hægt, mun einhver spyrja sig, því við nennum ekki að eyða mörgum klukkutímum í þrif þegar við gætum verið að gera eitthvað annað, eins og til dæmis að sofa. En til þess að framkvæma þessa stórkostlegu aðferð þarftu þrjú einföld hráefni; matarsóda, uppþvottalög og vatn. Matarsódinn hjálpar til við að brjóta niður óhreinindin og sápan mýkir upp föstu fituna í ofninum.

Þrifblandan sem er draumi líkust

  • ½ bolli af matarsóda
  • 1 msk. uppþvottalögur
  • vatn
  • Blandaðu öllu saman þar til þú ert kominn með góða blöndu sem auðvelt er að dreifa úr.
  • Berðu þunnt lag á ofninn og láttu standa yfir nótt.
  • Daginn eftir skaltu þurrka yfir með hreinum klút og fjarlægja allt klístur.
  • Úðaðu hvítu ediki yfir og þurrkaðu leifarnar af blöndunni eða fitu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert