Sláandi staðreyndir um rabarbara

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Vissir þú að hvíti hluti rabarbarans – þessi hvíti – sem flest okkar skera burt og henda, er sagður besti bitinn á rabarbaranum?

Svo segir Albert Eiríksson, sem veit nú sínu viti og gott betur.

„Hvíti hlutinn á rabarbaranum er eiginlega sá besti. Með því að sjóða hann niður og geyma kemur perukeimur af honum – ótrúlegt en satt. Þess vegna er hann af mörgum nefndur rabarbaraperur. Mjög góður eftirréttur. Hafið í huga að sjóða verður varlega. Ef þið eruð með hvíta hlutann af nýsprottnum rabarbara er nóg að setja hann í krukkur og hella sykurleginum yfir. Þykkari partar er þarf aðeins að sjóða örstutta stund, þess vegna hálfa til eina mínútu,“ segir Albert og ljóst að einhverjir hlaupa beint út í garð við þennan lestur.

Rabarbaraperur

  • ca 1 l rabarbaraperur (hvíti hlutinn af rabarbaranum)
  • 3-4 b vatn
  • 2 1/2 b sykur
  • 1 msk. vanillusykur

Setjið í pott og látið suðuna koma upp. Snyrtið rabarbaraperurnar og setjið þær út í (ef þær eru stórar) og sjóðið í örstutta stund áður en sett er í krukkur. Eða setjið þær fínlegu partana í krukku, hellið yfir og lokið.

mbl.is/Jónas Erlendsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert