Hið fullkomna skólanesti

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Það vandast oft málið þegar kemur að því að velja heppilegt skólanesti. Misjafnt er eftir skólum hvað má koma með en ef þörf er á góðum bita klikka heimabökuð skinkuhorn og pítsusnúar seint. Það er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & Smjör sem á heiðurinn að þessum uppskriftum.

Guðrún segir að núna þegar skólarnir séu að byrja hafi henni fundist hún þurfa að eiga eitthvað gott í frystinum. Hún hafi verið mjög dugleg að gera skinkuhorn fyrir krakkana til taka með en gott sé að eiga pístusnúðana líka. Hún segir það skipta miklu máli hvernig snúðarnir séu. Ekki koma til greina að hafa snúðana þurra. Þessir séu hins vegar afar gómsætir og hún geti mælt heilshugar með þeim.

Pítsusnúðar

Deig- 24 stk
  • 400 ml mjólk

  • 12 g þurrger (1pk / 2-3 tsk.)
  • 
1 msk. sykur

  • 100 ml olía
  • 
1 tsk. salt
  • 
660 g hveiti (Blár Kornax)

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina þangað til hún er ylvolg, í örbylgjuofni eða potti. Setjið í hrærivélina og bætið þurrgerinu saman við, hrærið létt saman. Leyfið því að standa örlítið meðan þið takið hin hráefnin saman. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og hrærið með krók á lágri stillingu í 3-4 mín.
  2. Takið deigið sem hefur fest við krókinn af og takið deigið í hendurnar á ykkur og hnoðið í kúlu. Setið deigið aftur í skálina og rakt viskastykki yfir.
  3. Leyfið deiginu að hvíla í minnst klst.

Fylling

  • 100 g skinka

  • 200 ml pizzasósa

  • 2-3 msk. pizzakrydd

  • 200 g rifinn mozarella ostur

Aðferð

  1. Takið deigið og setjið á hveitistráð borð og skiptið því upp í tvo hluta. Takið fyrri hlutann og fletjið út, reynið að fletja það út í ferhyrning sem er u.þ.b. 60×40 cm ( bara gott að hafa sem viðmið).
  2. Skerið skinkuna niður í litla bita. Dreifið þá helmingnum af pizzasósunni yfir deigið, sáldrið yfir með kryddinu, skinku og osti.
  3. Rúllið þá deiginu upp eins þétt og ykkur tekst til. Takið beittan hníf og skerið rúlluna í tvennt, þá er gott að gera það sama við partana sitthvoru megin og síðan hvern bút í þrennt. Þannig ættu þið að fá 12 snúða úr hvorri rúllunni u.þ.b. einn cm á breidd. Leggið snúðana á bökunarpappírsklædda ofnplötu og leyfið þeim að hefast í 15-20 mín.
  4. Endurtakið með hinn hlutann af deiginu.
  5. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, blástur. Takið eitt egg og hrærið létt saman með gaffli, penslið yfir snúðana og sáldrið svo restinni af ostinum yfir hvern og einn snúð
  6. Bakið snúðana í 5-7 mín eða þangað til þau eru orðin gullinbrún.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert