Mascarpone-tortellini með tómat og spínati

Ljósmynd/Gott í matinn

Hér kemur ein lauflétt og fljótleg pastauppskrift sem er í miklu uppáhaldi en henni er hægt að breyta og bæta eftir eigin höfði.

Mascarponeostur er frábær í matargerð. Hann gefur dásamlegt rjómabragð á móti skarpri tómatsósunni og bakast skemmtilega í ofninum.

Mascarpone-tortellini með tómat og spínati

Fyrir fjóra

  • 500 g ferskt eða þurrkað tortellini-pasta
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 2 hvítlauksrif, smátt söxuð
  • 2 msk. smjör
  • 200 g ferskt spínat, saxað
  • 2 dósir hakkaðir tómatar
  • 2 msk. tómatpaste
  • 1 tsk. grænmetiskraftur eða grænmetisteningur
  • salt og pipar
  • 150 g íslenskur mascarpone frá Gott í matinn
  • 1 fersk mozzarellakúla
  • rifinn parmesanostur eftir smekk

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Sigtið vatnið frá og setjið pastað til hliðar.
  2. Steikið lauk og hvítlauk í smjörinu þar til mýkist.
  3. Setjið spínat á pönnuna og steikið aðeins áfram.
  4. Hellið tómötum og tómatpasta á pönnuna ásamt grænmetiskrafti.
  5. Látið malla í fimm mínutur og smakkið til með salti og pipar.
  6. Hitið grill í ofni við háan hita.
  7. Setjið pastað saman við sósuna og blandið saman.
  8. Setjið litlar doppur af mascarponeosti með teskeið ofan á pastað ásamt mozzarella í litlum bitum og toppið með rifnum parmesan.
  9. Setjið í eldfast mót ef pannan þolir ekki ofn.
  10. Bakið undir grilli við háan hita þar til osturinn er gullinbrúnn.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert