„Chick-fil-A“ borgarinn sem þið ærist yfir

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Haldið ykkur fast því hér kemur endurgerð af einum besta kjúklingaborgara sögunnar. Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem þið verðið að prófa

„Chick-fil-A“ borgari

4 stykki

Kjúklingaborgari uppskrift

  • 2 stórar kjúklingabringur
  • 100 ml safi af súrum gúrkum í krukku
  • 50 ml vatn
  • 100 ml nýmjólk
  • 1 egg
  • 150 g hveiti
  • 3 msk. flórsykur
  • ½ tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • ½ tsk. chilliduft
  • ½ tsk. cheyenne pipar
  • Steikingarolía (um 400 ml)
  • 4 þykkar ostsneiðar
  1. Byrjið á því að „buffa“ bringurnar niður með buffhamri og skipta þeim síðan í tvo hluta, svo úr verði fjögur stykki.
  2. Blandið vatni og safa af súrum gúrkum saman í skál og leggið kjúklingabringurnar í skálina. Reynið að láta vökvann þekja þær alveg, setjið í kæli í um 30 mínútur á meðan annað er undirbúið.
  3. Pískið saman egg og mjólk í eina skál og hveiti, flórsykur og krydd í aðra.
  4. Hitið steikingarolíu í djúpum potti. Þegar hún hefur náð um 175°C er hægt að byrja að steikja kjúklinginn (ég var með á stillingu 7 af 9 nánast allan tímann hjá mér).
  5. Byrjið á því að dýfa kjúklingabitnum í eggjablönduna, því næst í hveitiblönduna og þjappa vel hveiti alls staðar. Síðan setja varlega ofan í heita olíuna með töng.
  6. Steikið hvern bita í um 4-5 mínútur, snúið að minnsta kosti einu sinni á meðan.
  7. Raðið þeim á grind, setjið ostsneið strax ofan á og leyfið umfram olíu að leka af.

Chick-fil-A sósa uppskrift

  • 100 g majónes
  • 1 tsk. Dijon sinnep
  • 3 tsk. gult sinnep
  • 2 msk. BBQ sósa
  • 2 msk. hunang
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. sítrónusafi
  1. Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.

Annað meðlæti og samsetning

  • 1 poki vöfflufranskar
  • 4 hamborgarabrauð
  • Blaðsalat
  • 1 buff-tómatur (eða 2 minni)
  • Súrar gúrkur
  1. Bakið franskarnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Gott að setja þær í ofninn á svipuðum tíma og þið byrjið að steikja kjúklinginn.
  2. Skerið niður tómat og salat og takið til súrar gúrkur.
  3. Steikið hamborgarabrauðin á pönnu, stutta stund á hvorri hlið.
  4. Raðið næst hamborgaranum saman: Smyrjið bæði brauðin með sósu, Leggið kálið neðst, því næst tómatinn, svo kjúklinginn og loks súru gúrkurnar.
  5. Berið fram með vöfflufrönskum og sósu.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert