Brauðið sem Hildur gat ekki hætt að hugsa um

Brioche brauðið sem Hildur varð hugfangin af í Berlín og …
Brioche brauðið sem Hildur varð hugfangin af í Berlín og ákvað að prófa að gera sjálf. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Dúnmjúkt og bragðgott briochebrauð með þeyttum ricottaosti og ofnbökuðum tómötum í boði Hildar Rutar – sem fór til Berlínar nú á dögunum og smakkaði briochebrauð með þeyttum osti. Eftir það varð ekki aftur snúið og Hildur varð að prófa sig áfram með uppskriftina.

„Það er einnig gott að bera brauðið fram með þeyttu smjöri eða þeyttum fetaosti og ekki skemmir að drekka gott rauðvín með. Tilvalið sem forréttur. Svo mæli ég með að útbúa french toast úr brauðinu daginn eftir,“ segir Hildur Rut.

Brauðið sem Hildur gat ekki hætt að hugsa um
Uppskriftin gerir tvö brauð

  • 1,6 dl volg mjólk
  • 1 bréf ger
  • 4 msk. hunang
  • 5 egg, 4 fyrir deigið og 1 til að pensla
  • 8-9 dl hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 60 g smjör, við stofuhita
  • 185 g kalt smjör, skorið í þunnar sneiðar

Aðferð:

  1. Blandið saman mjólk, geri, hunangi, 4 eggjum, hveiti og salti í hrærivél og notið deig krókinn. Hærið í 4-5 mínútur eða þar til hveitinu er vel blandað saman við hin hráefnin.
  2. Bætið við smjörinu við stofuhita og hrærið í 2-3 mínútur í viðbót.
  3. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið að hefast í 1 klst eða þar til deigið hefur tvöfaldast.
  4. Stráið smá hveiti á borð og setjið deigið ofan á. Fletjið út deigið í 30×45 cm rétthyrning.
  5. Leggið þunnar sneiðar af köldu smjöri á annan helminginn af deiginu og þrýstið varlega til að það festist. Brjótið saman hinn helmingnum af deiginu yfir smjörið og hyljið það alveg.
  6. Fletjið aftur út deigið í 30×45 cm rétthyrning. Brjótið nú ⅓ af deiginu í miðjuna og brjótið svo hinn yfir efsta hluta fyrsta lagsins þannig að nú hafið þið 3 deiglög (eins og umslag).
  7. Pakkið deiginu inn í plastfilmu og setjið í ísskáp í 15-20 mínútur þar til það hefur kólnað (einnig er hægt að kæla deigið yfir nótt í ísskápnum).
  8. Smyrjið tvö 22 x12 cm brauðform.
  9. Takið deigið úr ísskápnum og rúllið því í um 30×45 cm rétthyrning. Rúllið deiginu í pylsu og haldið því þétt að ykkur á meðan þið rúllið. Skerið deigið í tvennt og setjið í brauðformin. Hyljið það með viskastykki og látið hefast í 45 mínútur-1 klst.
  10. Penslið deigin með þeyttu eggi og bakið í ofni við 180°C í 30-35 mínútur eða þar til brauðið er orðið dökkbrúnt að ofan. Látið kólna aðeins og berið fram með þeyttum ricottaosti eða því sem ykkur langar í.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert