Hin fullkomna aspassúpa

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Góð súpa er hinn fullkomni kvöldverður svona í upphafi vikunnar, þá ekki síst ef boðið er upp á gott brauð með og jafnvel smá salat. Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld sem hún segir að henti jafn vel sem aðalréttur eða sem forréttur yfir hátíðarnar.

„Ferskur aspas er svo góður, hér notaðist ég við „mini“ ferskan aspas og hentar hann mjög vel fyrir súpur en að sjálfssögðu er í lagi að nota þennan hefðbundna líka. Einnig væri gaman að prófa hvítan aspas, hann er stundum til yfir hátíðirnar og bragðast í raun alveg eins að mínu mati, örlítið mýkri í sér og svo er útlitið bara öðruvísi og skemmtilegt,“ segir Berglind um uppskriftina.

Aspassúpa

Fyrir um það bil 4 manns

  • 400 g ferskur aspas
  • 2 skalottlaukar
  • 2 hvítlauksrif
  • 700 ml rjómi
  • 700 ml vatn
  • 2 pakkar TORO aspassúpubréf
  • Salt + pipar
  • Smjör til steikingar
  • Brauðteningar
  • Sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Skerið trenaða hlutann af aspasnum og skerið hann því næst í munnstóra bita. Hér er notast við mini-aspas og nokkrir heilir geymdir til þess að skreyta með en það er þó óþarfi.
  2. Saxið skalottlauk og hvítlauk og steikið upp úr smjöri ásamt aspasnum í góðum potti. Kryddið til með salti og pipar eftir smekk.
  3. Þegar grænmetið fer að mýkjast má hella rjóma og vatni í pottinn og píska bæði súpubréfin saman við, hitið að suðu.
  4. Lækkið þá hitann og leyfið að malla í um 15 mínútur, hrærið reglulega í súpunni á meðan og kryddið og smakkið til.
  5. Berið fram með sýrðum rjóma og brauðteningum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert