Hrefna Sætran opnar svalasta barinn í bænum

Hrefna Rósa Sætran hefur opnað nýjan eitursvalan bar sem heitir …
Hrefna Rósa Sætran hefur opnað nýjan eitursvalan bar sem heitir Uppi og er staðsettur fyrir ofan Fiskmarkaðinn. Ljósmynd/Aðsend

Hrefna Sætran hefur opnað nýjan bar í miðborg Reykjavíkur. Staðurinn heitir Uppi og er til húsa fyrir ofan Fiskmarkaðinn í Aðalstræti 12. Gengið er inn vinstra megin við húsið og eina hæð upp.

Að sögn Hrefnu Sætran er markmiðið að veita einstaka matar- og vínupplifun sem eykur þekkingu og leiðir fólk í nýjar og óþekktar áttir í mat og drykk.

„Okkur langar til að fræða og vekja áhuga fólks á víni og mat og víkka þannig sjóndeildarhringinn. Við bjuggum til smárétti þar sem við erum búin að para vín við hvern rétt og mælum við þá með að panta nokkra rétti og smakka vínin með. Einnig erum við með fjölbreytt úrval af kokteilum, bjór og óáfengum drykkjum ásamt sjaldgæfu úrvali af víni sem við höfum verið að sanka að okkur,“ segir hún.

Marta segir að staðurinn sé opnaður kl. 16 alla daga vikunnar þar sem boðið sé upp á happy hour frá 16-18. „Við erum líka með opið á öðrum tíma ef áhugi er fyrir því og leiga á staðnum í boði. Uppi er fyrir ofan Fiskmarkaðinn veitingahús og það er hægt að ganga á milli hæða innanhúss svo fordrykkur uppi og matur niðri eða matur niðri og drykkur Uppi eftir mat er nýr möguleiki hjá okkur. Að staðnum stendur metnaðarfullt teymi lærðra þjóna og matreiðslumanna.“

Hönnun staðarins var í höndum Hrafnhildar Hólmgeirsdóttur og grafíska hönnunin er eftir Sigga Odds.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert