Nú getur þú fengið kokteil í kapellu

Ljósmynd/Chapel Bar

Þetta er formlega eitt fallegasta húsnæði sem við höfum séð en um er að ræða kynngimagnaðan kokteilbar í New York sem er til húsa í gamalli kapellu og kallast einmitt Kapellubarinn eða Chapel Bar.

Byggingin er úr múrsteini og stendur á horni 21st og Park Avenue. Kapellan var byggð árið 1860 og hefur allar götur síðan þjónað margvíslegum hlutverkum.

Og nú er þar bar sem vert er að heimsækja og þess ber að geta að hægt er að fá sér drykk á skriftastólnum ... en það verður að teljast frekar nýmóðins.

Ljósmynd/Chapel Bar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert