Lúxus ragú gert af ást

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Þessi dásamlegi pastaréttur er úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is og ætti ekki að valda neinum vonbrigðum.

„Þessi himneski pastaréttur færir þig örlítið nær Ítalíu með hverjum munnbita. Réttinn er best að hægelda og jafnvel gera kjötsósuna deginum áður en hann er borinn fram. Perfecto!“

Lúxus ragú gert af ást

  • 4 msk ólífuolía
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 stór gulrót, smátt söxuð
  • 1 sellerí, smátt söxuð
  • 500 g nautafillet, skorin í 2 cm bita
  • 300 ml rauðvín
  • 100 ml nautasoð, heitt
  • 4 msk tómatpúrra
  • 680 g tómat passata (maukaðir tómatar)
  • 10 fersk basilíkulauf, söxuð
  • 500 g fettuccine/papparadelle eða tagliatelle
  • 80 g parmesan ostur, rifinn
  • salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. Hitið olíu í potti við miðlungshita og látið lauk, gulrót og sellerí þar í. Steikið í um 8 mín.
  2. Bætið kjötinu saman við og steikið í 2 mínútur. Hellið víninu saman við og látið malla í tvær mínútur. Kryddið með salti og pipar. Látið lok á yfir og látið malla áfram í 30 mínútur. Hrærið af og til í blöndunni.
  3. Eftir 30 mínútur bætið soði, tómatpúrru og passata saman við. Hitið að suðu. Lækkið þá hitann, látið lokið aftur á og látið malla í 1 1/2 klst. Hrærið á 20 mín fresti.
  4. Látið að lokum basilíku saman við og smakkið til með salti og pipar.
  5. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Setjið í skál og hellið sósunni yfir. Veltið vel saman í 30 sekúntur og stráið parmesan yfir áður en borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert