Lakkrís sem fær hjartað til að slá örar

mbl.is/Lakrids by Bülow

Sem og svo oft áður, slær lakkrískóngurinn í gegn með einstakan lakkrís - og að þessu sinni með vöru sem fær hjartað til að slá örar. Í ár er LOVE lakkrísinn nefnilega hjartalaga og kemur hjúpaður í tveimur ómótstæðilegum bragðtegundum eða Strawberry & Cream og Fruity Caramel. Báðir hreint út sagt ómótstæðilega góðir.

Strawberry & Cream er fullkomin samsetning sem kitlar bragðlaukana. Rauð jarðaber, rjómi og sætur lakkrís hjúpað með einstöku hvítu súkkulaði sem bindur bragðupplifunina saman. Að mati Lakrids by Bülow, er hér um hina sönnu dönsku ást að ræða og þar tökum við heilshugar undir. Fruity Caramel er einnig spennandi samsetning með saltlakkrís, hjúpaður er með silkimjúku dulce de leche súkkulaði, velt upp úr sætu sólberjadufti og stökkum flögum af Raw lakkrís. Við höfum fallist á að kalla þessa hjartalaga-tvennu, hina fullkomnu blöndu fyrir sælkerahjartað sem við elskum að næra.

Án efa vinsælasti sælkeralakkrís landsins og víðar ef því er …
Án efa vinsælasti sælkeralakkrís landsins og víðar ef því er að skipta. mbl.is/Lakrids by Bülow
mbl.is/Lakrids by Bülow
mbl.is/Lakrids by Bülow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert