Grænmetisréttur sem ærir bragðlaukana

Léttur og ljúffengur grænmetisréttur.
Léttur og ljúffengur grænmetisréttur. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Fylltur kúrbítur með grænmeti, fetaosti, klettasalati og spæsí mæjó er hér á borðum. Fullkominn réttur á bröns borðið eða sem léttur og ljúffengur kvöldmatur. Ef fetaosturinn er tekinn út, þá er rétturinn orðinn vegan – að sögn Hildar Rutar sem á heiðurinn að uppskriftinni.

Grænmetisréttur sem fullkomnar brönsinn

  • 1 kúrbítur
  • Ólífuolía
  • 1-2 dl brokkólí
  • 1-2 dl blómkál
  • 2-4 sveppir
  • Laukduft
  • Túrmerik
  • Cumin
  • Salt og pipar
  • Stappaður fetaostur
  • Klettasalat

Sósa

  • 3 msk. majónes
  • 1-2 tsk. Sambal oelek

Aðferð:

  1. Skerið kúrbít í tvennt og hreinsið innan úr honum með skeið. Leggið á bökunarplötu og dreifið olíu og smá salti yfir. Bakið í ofni við 200° í 30 mínútur.
  2. Á meðan, skerið brokkólí, blómkál og sveppi í bita og steikið á pönnu upp úr olíu. Kryddið með laukdufti, túrmeriki, kúmín, salti og pipar.
  3. Fyllið kúrbítinn með blómkáls-og brokkólíblöndunni og dreifið stöppuðum fetaosti yfir.
  4. Bakið kúrbítinn í 5-7 mínútur í viðbót. Toppið síðan með sósunni og klettasalati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert